19.12.2008 | 21:02
Menntun er grunnstoð.
Menntun er einn hluti af þeirri grunnþjónustu sem ríkið ber skyldur til þess að veita samfélaginu. Sama hvernig árið er þá á menntun ekki að líða fyrir.
Hinir hlutarnir eru heilbrigðisþjónusta, menning og samgöngur/samskipti.
Það sagt þá get ég alveg nefnt að fjölbreytni náms í HÍ er of mikil á of stuttum tíma. Það sem ég á við er að það eru allt of margir áfangar sem eru kenndir á hverju ári. Þar á móti vantar aftur verulega aukið afl í rannsóknarvinnu ... þannig að "sparnaðarlega" séð þá kemur þetta út á eitt.
Mótmæla niðurskurðinum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Sæll.
Athyglisverðar pælingar, m.a. það sem þú skrifaðir um undirskriftir, forsetann o.fl. Það þarf að þróa hér áfram lýðræðisleg vinnubrögð og aðferðarfræði með beinni þátttöku almennings í ríkari mæli.
Hljómar eins og við séum eitthvað skyldir, ætla að skoða það.
jólakveðja
Árni Þór Sigurðsson
Árni Þór Sigurðsson, 27.12.2008 kl. 00:58
Takk fyrir jákvæða styrkingu :)
Efast samt um að skoðanaskyldleiki sé arfgengur ;) ... samt fyndið og voða íslenskt.
Björn Leví Gunnarsson, 2.1.2009 kl. 02:42
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.