22.5.2009 | 15:28
Eitt helsta vandamál sveitafélaganna
... er útsvarið.
http://www.grundarfjordur.is/Files/Skra_0008560.doc
Segir meðal annars:
Eitt af þeim ,,áreitum sem útsvarsstofninn hefur orðið fyrir á undanförnum árum er breytt löggjöf sem lýtur að rekstri einkahlutafélaga. Þróunin hefur verið sú hjá sjálfstæðum atvinnurekendum í svonefndum einstaklingsrekstri, að einstaklingsrekstrinum er breytt yfir í einkahlutafélag. Breytingin gefur eigendum (sem jafnframt eru starfsmenn fyrirtækisins) svigrúm til þess að reikna sér lægri laun en taka á móti mun hærri fjárhæð út úr félaginu og reikna sér arðgreiðslu í lok ársins fyrir mismun úttekta og reiknaðra launa. Af arðgreiðslunni er greiddur 10% fjármagnstekjuskattur, en af launum eru greidd tekjuskattur og útsvar sem er um 3-4 sinnum hærri fjárhæð.
Sveitafélögin fá ekkert af fjármagnstekjuskattinum, hann fer beint í ríkissjóð. Gríðarlegar tekjur sem aflað er heima í hverju sveitafélagi fer þannig fram hjá sveitafélaginu sjálfu og beint í ríkissjóð sem þýðir að viðkomandi er ekki að borga fyrir uppihald skóla eða fyrir aðra þjónustu sem sveitafélagið veitir.
Afleiðingarnar af þessum tekjumissi fyrir sveitafélögin eru gríðarlega miklar. Laga takk!
![]() |
Slæm staða hjá Grundarfjarðarbæ |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.